Samfylkingin í Kópavogi

Samfylkingin í Kópavogi | samfylkingin.kopavogur.is



Venjulegt letur | Stórt letur


Niðurstöður í forvali

31. janúar 2010

Niðurstöður í forvaliForval Samfylkingarinnar í Kópavogi var haldið í gær, laugardaginn 30. janúar, í Smáraskóla. Kosið var um 6 efstu sæti framboðslistans vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Niðurstöður urðu þannig:

Guðríður Arnardóttir, 1. sæti
Hafsteinn Karlsson, 2. sæti
Pétur Ólafsson, 3. sæti
Elfur Logadóttir, 4. sæti
Margrét Júlía Rafnsdóttir, 5. sæti
Tjörvi Dýrfjörð, 6. sæti.

meira


Framboðskynningar í Kópavogi

29. janúar 2010

Framboðskynningar í Kópavogi
Í nýjasta tölublaði af Kópavogi má lesa kynningar frambjóðenda vegna forvalsins.


(Smellið á myndina til að lesa blaðið)









izle

kral oyun

video izle

oyun

video

yemek tarifleri

kadin
pes

izle

oyun

meira


Forsætisráðherra mætir á forvalsfundinn

28. janúar 2010

Jóhanna Sigurðardóttir Okkar ágæti formaður og forsætisráherra mun flytja ávarp á forvalsfundinum.









meira


Stóri Samfylkingardagurinn er á laugardaginn!

28. janúar 2010

Kæru félagar

Stóri Samfylkingardagurinn er á laugardaginn!

Samfylkingin í Kópavogi stendur fyrir forvalsfundi þar sem kosið verður um sex efstu sæti framboðslista flokksins til komandi sveitarstjórnarkosninga. Forvalsfundurinn fer fram næstkomandi laugardag, 30. janúar 2010 í Smáraskóla og hefst með skráningu kl. 10:00. Kynningar á frambjóðendum hefjast kl. 12:00 og kosningar þar á eftir. Á forvalsfundinum verður kosið í sæti frá 1 – 6, um eitt sæti í senn. Niðurstaða forvalsins er bindandi fyrir efstu sex sætin að teknu tilliti til jöfnunar kynjahlutfalls samkvæmt paralistafyrirkomulagi.

Í framboði eru eftirtalin: Svala Jónsdóttir, Tjörvi Dýrfjörð, Þorsteinn Ingimarsson, Elfur Logadóttir, Guðmundur Örn Jónsson, Guðríður Arnardóttir, Guðrún Jóna Jónsdóttir, Hafsteinn Karlsson, Hjördís Erlingsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Óðinn Hilmisson, Pétur Ólafsson og Sigurður M. Grétarsson.


Kosningarétt á forvalsfundinum hafa einstaklingar með lögheimili í Kópavogi, sem náð hafa 16 ára aldri á forvalsdag og eru skráðir í eitthvert aðildarfélag Samfylkingarinnar fyrir kl. 18:00 þann 23. janúar 2010.

Sýna þarf skilríki á fundinum.

Þeir sem hyggjast mæta á fundinn eru beðnir um að tilkynna mætingu með því að senda tölvupóst á netfang kjörstjórnar:
flokksval2010@gmail.com

Við viljum einnig minna á Samfylkinguna í Kópavogi á netinu. Vefurinn er http://samfylkingin.kopavogur.is, Facebook síða félagsins er hér og Facebook viðburðurinn vegna forvalsins er hér.



Nánari upplýsingar hér á síðunni og í síma 898 3060.



Kveðja


Ýr Gunnlaugsdóttir
Formaður Samfylkingarfélagsins í Kópavogi


Kjörstjórn

meira


Fyrri framboðsfundur

20. janúar 2010

Fyrri framboðsfundur frambjóðenda í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi var í gærkvöldi. Fullur salur af fólki og frambjóðendur kraftmiklir og flottir. Það verður erfitt að velja á milli þessara hæfu einstaklinga. Næsta mánudag, þann 25.jan verður annar framboðsfundurinn. Þar svara frambjóðendur fyrirspurnum frá fundargestum. Allir velkomnir.

meira


Forval Samfylkingarinnar í Kópavogi

17. janúar 2010

Forval Samfylkingarinnar í Kópavogi
vegna vals frambjóðenda á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2010


Samfylkingin í Kópavogi stendur fyrir forvalsfundi þar sem kosið verður um sex efstu sæti framboðslista flokksins til komandi sveitarstjórnarkosninga. Forvalsfundurinn fer fram laugardaginn 30. janúar 2010 í Smáraskóla og hefst með skráningu kl. 10:00. Kynningar á frambjóðendum hefjast kl. 12:00 og kosningar þar á eftir. Á forvalsfundinum verður kosið í sæti frá 1 – 6, um eitt sæti í senn. Niðurstaða forvalsins er bindandi fyrir efstu sex sætin að teknu tilliti til jöfnunar kynjahlutfalls samkvæmt paralistafyrirkomulagi.

Í framboði eru (í stafrófsröð):

  • Elfur Logadóttir, lögfræðingur, 4. sæti
  • Guðmundur Örn Jónsson, verkfræðingur, 3. sæti
  • Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi, 1. sæti
  • Guðrún Jóna Jónsdóttir, tölvunarfræðingur, 3. sæti
  • Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi, 2. sæti
  • Hjördís Erlingsdóttir, sölufulltrúi, 3. sæti
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri, 3. sæti
  • Óðinn Hilmisson, trésmiður, 4. sæti
  • Pétur Ólafsson, þýðandi og sagnfræðingur, 3. sæti
  • Sigurður M. Grétarsson, sérfræðingur, 3. sæti
  • Svala Jónsdóttir, fjölmiðlafræðingur, 3. sæti
  • Tjörvi Dýrfjörð, verkefnastjóri, 3. sæti
  • Þorsteinn Ingimarsson, sölu­ og markaðsstjóri, 2. sæti

Kosningarétt á forvalsfundinum hafa einstaklingar með lögheimili í Kópavogi, sem náð hafa 16 ára aldri á forvalsdag og eru skráðir í eitthvert aðildarfélag Samfylkingarinnar fyrir kl. 18:00 þann 23. janúar 2010. Sýna þarf skilríki á fundinum. Þeir sem hyggjast mæta á fundinn eru beðnir um að láta vita með því að senda tölvupóst á netfang kjörstjórnar: flokksval2010@gmail.com.

Kjörstjórn Samfylkingarinnar í Kópavogi



meira




Samfylkingin í Kópavogi

Hamraborg 11, 3. hæð


Vil styrkja starfið
Vil vera með
Vil fylgjast með

Í dag eru

109 dagar

til sveitarstjórnarkosninga


Kópavogur
Myndir frá kosningabaráttunni

Ungir jafnaðarmenn
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar
Framtíðarhópur Samfylkingarinnar
Framtíðarhópur Samfylkingarinnar

Ætlar þú að taka þátt í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi?

Nei

Veit ekki


     


Tilkynningar

Blað Samfylkingarinnar í Kópavogi

Kópavogur 1.tbl. 2010


Leiga á salnum Hamraborg 11

Elsa sími 659 2522
elsad@kopavogur.is
salur@simnet.is